TMI hefur nú verið starfrækt í 10 ár
Í júní á þessu ári voru tíu ár liðin frá stofnun Tryggingamiðlunar Íslands ehf, sem er ein elsta starfandi vátryggingamiðlun landsins. TMÍ hefur frá öndverðu miðlað til bresku líftryggingafélaganna Friends Provident og Sunlife.
Framkvæmdastjóri og eigandi Tryggingamiðlunar Íslands ehf. er Karl Jónsson, löggildur vátryggingamiðlari. Karl hefur einnig réttindi til verðbréfamiðlunar. Hann hefur 30 ára starfsreynslu sem bankastarfsmaður, 20 ára reynslu sem útibússtjóri og nú 10 ára starfsreynslu sem framkvæmdastjóri Tryggingamiðlunar Íslands.
Tryggingamiðlun Íslands býður m.a. upp á líf- og söfnunartryggingar, sjúkdómatryggingar, slysatryggingar, fjárfestatryggingar, ferðatryggingar, eignatryggingar, fyrirtækjatryggingar og lífeyrissparnað.
Hjá fyrirtækinu starfa 15 starfmenn.